Ráðgjöf í boði

Ég hef verið fjölmörgum fyrirtækjum innan handar með flutningamálin og hefur í öllum tilfellum náðst umtalsverður sparnaður!

Teljir þú þitt fyrirtæki geta nýtt þér aðstoð mína við einhver af ofangreindum atriðum, ekki hika við að hafa samband og ég get farið yfir málin með þér án nokkurra skuldbindinga

MM Logik veitir hlutlausa og óháða sérfræðiráðgjöf með áherslu á “logistics”

Flutningaráðgjöf

  • Aðstoð við samningagerð, útboð og verðkannanir með það að markmiði að vera ávallt á hagstæðustu kjörum

  • Samskipti við flutningsaðila og birgja

  • Greina flutningsleiðir og magn/stærð sendinga m.t.t. hagstæðustu flutningsverða

  • Fara yfir flutningsskilmála (Incoterms) innkaupa m.t.t. hagstæðustu innkaupsverða á vöru

  • Yfirfara flutningsgjaldareikninga

  • Aðstoð ráðgjöf við tollamál

  • Birgðir, birgðahald og stýring

Innkaupastýring - Innkaupastjóri

  • Er erfitt að réttlæta heilt stöðugildi Innkaupastjóra? Láttu okkur sjá um innkaup og innkaupastýringu og við gætum þinna hagsmuna

  • Getum tekið að okkur innkaupastjórn fyrirtækja